Gámar undir jólatré á völdum stöðum

Gámum undir jólatré á Akureyri verður komið fyrir við báðar verslanir Bónus, Hagkaup og verslunarmiðstöðina Sunnuhlíð, við Kaupang og Hrísalund. Íbúar eru hvattir til að koma jólatrjám í þessa gáma þar sem þau verða ekki tekin við lóðarmörk. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Mikið rusl fellur til um áramót þegar miklu magni af flugeldum er skotið á loft. Á hverju ári hafa tómir flugeldakassar, spýtur og prik legið á víð og dreif um bæinn. Íbúar og fyrirtæki eru beðin um að huga að nærumhverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina, þar sem flugeldarusl verður ekki tekið upp við lóðarmörk. Flugeldaruslið á heima í almennu sorpi.


Athugasemdir

Nýjast