Gamanmyndin Jóhannes, með Ladda í aðalhlutverki, frumsýnd

Gamanmyndin Jóhannes, með Þórhalli Sigurðssyni, Ladda, í aðalhlutverki, verður frumsýnd í nokkrum kvikmyndahúsum í dag föstudag, m.a. í Borgarbíói á Akureyri. Þetta er jafnframt fyrsta kvikmyndin þar sem Laddi er í aðalhlutverki. Í öðrum aðalhlutverkum eru Stefán Karl Stefánsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Guðrún Ásmundsdóttir og Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.  

Í þessari hreinræktuðu gamanmynd leikur Laddi myndlistarkennarann Jóhannes sem upplifir dag sem ætlar engan endi að taka. Þessi ólukkudagur hefst á því að Jóhannes stoppar í grenjandi rigningu á Reykjanesbrautinni til að hjálpa ungri stúlku sem er í bílavandræðum. Í framhaldinu hefst atburðarás sem er í senn hröð, spennandi en fyrst og fremst fyndin. Greiðasemi Jóhannesar kemur honum í endalaus vandræði þar sem allar tilraunir til að losa sig úr vandanum auka bara á hrakfarirnar. Á vegi Jóhannesar verða ýmsir kostulegir karakterar, bandbrjálaður afbrýðissamur kærasti Tótu, afar metnaðarfullur skólastjóri, óalandi unglingur og bráðskemmtilegt lögregluþjónatvíeyki. Á meðan Jóhannes stendur í stórræðum er tengdamóðir hans háöldruð á leiðinni í stelpuferð til Köben með vinkonum sínum tveim. Þær sýna það svo um munar að heldri frúr slá ekki af í skemmtanahaldinu. Tengdamóðirin lætur ferðalagið ekki trufla sig við eftirlætisiðju sína en það er að leggja Jóhannes í einelti. Myndin er mikil skemmtun frá fyrstu til síðustu mínútu. Í þessa mynd þarf því engar stáltaugar bara hláturtaugar og örlítið af meðaumkun yfir óförum Jóhannesar.

Laddi, einn ástsælasti gamanleikari þjóðarinnar, sem nú er óumdeilt á hátindi ferils síns hefur leikið í 16 kvikmyndum og ótal sjónvarpsþáttum auk þess sem hann hefur verið afkastamikill skemmtikraftur og tónlistarmaður. Jóhannes er fyrsta kvikmyndin þar sem Laddi fer með aðalhlutverk en ósjaldan hefur hann stolið senunni í þeim myndum þar sem hann hefur verið í aukahlutverki. Jóhannes er einnig fyrsta kvikmyndin þar sem feðgarnir Laddi og Þórhallur Þórhallsson vinna saman en Þórhallur yngri virðist ætla að feta í fótspor föður síns og ber nú titilinn; Fyndnasti maður Íslands, eftir að hafa sigrað samnefnda keppni. Gamanmyndin Jóhannes var tekin í sumar í Reykjavík, Hafnarfirði, Hvalfirði, Borgarfirði, Leifsstöð og Kastrup flugvelli. Alls störfuðu um 70 manns við gerð myndarinnar auk fjölda aukaleikara. Myndin verður frumsýnd í dag 16. október, sem fyrr segir, í Laugarásbíói, Háskólabíói, Smárabíói og Borgarbíói á Akureyri.

Nýjast