Það var sérstakur dagur í gær hjá lögreglunni á Akureyri en greint er frá því á Facebooksíðu lögreglunnar að marían, 119. Ford Econoline, sem að er búinn að vera í notkun á Akureyri síðan júní 1997, hafi verið lagt. Segir lögreglan að margir hafi byrjað sín fyrstu skref í lögreglunni sem þriðji maður í aftursætinu í þessari lögreglubifreið.
„Bifreiðin hefur verið áberandi í kringum næturlífið á Akureyri um helgar og ófáir í misjöfnu ástandi sem að hafa fengið „skutl“ í þessari bifreið. Lögreglumönnum á Akureyri þykir mörgum vænt um 119 og því var það ánægjulegt að Samgönguminjasafnið á Ystafelli ætlar að varðveita bifreiðina fyrir Lögregluminjasafnið,“ segir í færslu lögreglunnar.