Gagnrýnir greiðslur í námsstyrkjasjóð embættismanna

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að taka aftur upp greiðslur í námsstyrkjasjóð embættismanna bæjarins frá og með 1. ágúst nk. Gert er ráð fyrir að kostnaðurinn verði um 3,2 milljónir króna á árinu. Sigurður Guðmundsson bæjarfulltrúi Bæjarlistann gagnrýnir afgreiðslu bæjarráðs harðlega.  

"Það er út úr öllu korti á þessum tíma að fara að greiða um 40.000 krónur fyrir hvern embættismann í þennan sjóð, eða rúmar 650.000 krónur á mánuði fyrir þessa 17 starfsmenn, sem hér um ræðir. Þetta eru líka kjör sem ekki bjóðast öðrum starfsmönnum bæjarins," segir Sigurður. Hann segir að kostnaður bæjarins það sem eftir lifir árs sé um 3,2 milljónir króna og um 7 milljónir króna á næsta ári.

Nýjast