Gáfu tvö hjartastuðtæki

Fulltrúar Slysvarnarfélags Akureyrar afhenda Aðalsteini Sigurgeirssyni hjartastuðtækin.
Fulltrúar Slysvarnarfélags Akureyrar afhenda Aðalsteini Sigurgeirssyni hjartastuðtækin.

Slysavarnadeildin á Akureyri hefur afhent tvö hjartastuðtæki sem safnað var fyrir á Friðarvökunni á Akureyrarvöku en félagið lagði einnig fjármuni til kaupanna. Annað tækið er í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem það gagnast bæjarbúum og gestum en þar eru haldnir ýmsir fjölmennir viðburðir s.s. árshátíðir Akureyrarbæjar og Sjúkrahússins á Akureyri,  útskriftarhátíðir MA stúdenta og júbilanta auk fjölmennra íþróttaviðburðanna svo eitthvað sé nefnt.

Að sögn Aðalsteins Sigurgeirssonar forstöðumanns Íþróttahallarinnar sem veitti tækjunum viðtöku heimsækja á bilinu  þrjú til fjögurhundruð þúsund gestir húsið ár hvert.

Hitt tækið er staðsett í húsakynnum Glerárlaugar og gagnast þar sundlaugargestum en einnig verður hægt að nýta það í Íþróttahúsi Glerárskóla ef þörf krefur. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.  

Nýjast