Gætu þurft að hafna helmingi umsókna í HA

Háskólinn á Akureyri.
Háskólinn á Akureyri.

Þriðja árið í röð eru fleiri en 2000 umsóknir um nám við Háskólann á Akureyri en lokað var fyrir umsóknargátt um skólavist í síðustu viku. Árið 2018 fóru umsóknir í fyrsta sinn yfir 2000. Á vef HA segir að skólinn hafi á síðustu árum þurft að takmarka aðgengi umfram það sem gert er í öðrum opinberum háskólum.

Eftir að lokað hafi verið fyrir umsóknargátt sé ljóst að enn erfiðara verði að forgangsraða umsóknum fyrir komandi skólaár. Komi ekki til aukinna fjárveitinga til háskólans fyrir næsta skólaár mun háskólinn þurfa að hafna allt að helmingi þeirra umsókna sem bárust.

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir á heimasíðu skólans að það verði mikilvægt samtal við stjórnvöld næstu daga með hvaða hætti hægt verður að tryggja nemendum aðgengi að háskólanámi án þess að ganga frekar á mannauð skólans svo unnt sé að standa við gæði námsins á öllum stigum. Ljóst er að til þess að það sé unnt er þörf á verulegu fjármagni.

Flestir vilja í viðskiptafræði og hjúkrunarfræði 

Alls bárust 2.033 umsóknir, flestar í viðskiptafræði eða 309 talsins. Næstflestir sóttu um nám í hjúkrunarfræði eða 279. Þá hafa aldrei eins margir sótt um nám í sálfræði líkt og nú en alls bárust 262 umsóknir í sálfræði. Mikið átak hefur verið í því að fjölga kennaranemum og fjölgun var í umsóknum í kennaradeild, bæði í grunn- og framhaldsnám.

Umsóknum í iðjuþjálfunarfræði fjölgar um 30% á milli ára og umsóknum í grunnnám í auðlindadeild fjölgar um 16%. Nám í lögreglufræðum nýtur áfram mikilla vinsælda við skólann. Alls bárust 243 umsóknir í nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn og er gert ráð fyrir því að 40 nemendur muni hefja starfsnám í janúar 2021.


Athugasemdir

Nýjast