Fyrsta skóflustunga af Krónuverslun

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar og Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi, skóflust…
Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar og Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi, skóflustungu að viðstaddri Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri, ásamt fulltrúum Akureyrarbæjar, Festi og Krónunnar. Mynd/Agnieszka Luksza.

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi, eignarhaldsfélags Krónunnar, tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri verslun Krónunnar á Akureyri. Verslunin verður á svokölluðum Hvannavallarreit og er áætlað að hún opni síðla árs 2022.

Krónuverslunin verður rúmir 2.000 fermetrar að stærð og verður fyrsti áfangi framkvæmdarinnar í höndum Lækjarsels ehf, á Akureyri. "Krónan er dagvöruverslun sem leggur mikið upp úr ferskvöru, hollustu og umhverfismálum – og elskar snjallar lausnir sem einfalda lífið. Áhersla er lögð á að koma þessu fjölbreytta vöruúrvali í hendur neytenda á eins ódýran hátt og mögulegt er. Krónuverslanir hafa verið starfræktar á Íslandi frá árinu 2000," segir í tilkynningu.

Þessi skóflustunga hér í dag er langþráð og markar mikilvæg tímamót hjá Krónunni. Með þessari verslun, sem verður okkar fyrsta á Norðurlandi, náum við að auka þjónustu okkar á landsbyggðinni og stækka hóp mögulegra viðskiptavina okkar verulega. Við hlökkum mikið til að hefja samstarf við fólkið á svæðinu og ekki síst að taka virkan þátt í nærumhverfi Krónunnar hér á Akureyri. Við munum að venju leggja allt okkar í að bjóða vandað vöruúrval á sem bestu verði og kynna snjallar lausnir sem einfalda lífið við innkaupin,“ sagði Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.

 


Athugasemdir

Nýjast