Fylkir lagði KA/Þór að velli með eins marks mun er liðin mættust í Árbænum í N1- deild kvenna í handbolta
í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 24:23. KA/Þór er því sem fyrr með 11 stig í í sjöunda sæti deildarinnar en
Fylkir hefur 16 stig í sjötta sæti.
Skólalóðin við Glerárskóla hefur formlega verið tekin í notkun. Framkvæmdir hafa staðið yfir um nokkurt skeið en nú er þeim loksins að mestu lokið og leiktækin tilbúin til notkunar.
Starfsemi Fincafresh mun á næstu vikum verða flutt il Garðabæjar. Félagið hóf sína starfsemi á Dalvík en flutti til Akureyrar fyrir fáeinum misserum. Nú verður enn á ný lagt upp í ferðalag. Fincafresh selur ferska ávexti beint frá Spáni til áskrifenda.
Hafna þurfti tugum umsókna sem bárust um Heimavist MA og VMA nú á þessu hausti. Vistin er fullsetin, en þar búa nú um 330 nemendur sem stunda ýmist nám í Menntaskólanum á Akureyri eða Verkmenntaskólanum á Akureyri. Yfir 400 umsóknir bárust um vist á þessu hausti, en pláss er fyrir 330.
Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.