Fundað um lífeyrismál hjá verkalýðsfélögum

Á fundi stjórnar Einingar-Iðju í gær var ákveðið að félagið myndi halda tvo fundi á næstunni um lífeyrissjóðsmál. Annar fundurinn verður á Akureyri en hinn á Siglufirði. Mikil umræða hefur verið um lífeyrissjóðakerfið eftir að skýrsla þriggja manna nefndar um fjárfestingarstefnu, ákvarðanir og lagaumhverfi sjóðanna fyrir hrunið var kynnt. Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju situr í stjórn Stapa lífeyrissjóðs og hefur gert til fjölda ára. Miklar umræður urðu um skýrsluna á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar í byrjun vikunnar og voru fundarmenn sammála um mikilvægi þess að málefnaleg umræða fari fram um niðurstöður nefndarinnar. Á vef Framsýnar kemur fram að á meðan sumar athugsemdir nefndarinnar þarfnist frekari skýringa við séu aðrar sem beri að taka alvarlega. Nefndin gerir m.a. athugsemdir við að ekki sé hámarkstími á setu manna í stjórn Stapa sem Framsýn á aðild að. Í því sambandi má geta þess að fulltrúar Framsýnar lögðu fram tillögu þess efnis á síðasta ársfundi sjóðsins sem var felld. Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundinum að fara þess á leit við stjórn Stapa- lífeyrissjóðs að þegar í stað verði boðað til fulltrúaráðsfundar í sjóðnum þar sem farið verði yfir skýrslu úttektarnefndarinnar sem skipuð var til að skoða málefni lífeyrissjóðanna í aðdraganda bakahrunsins. Þá telur Framsýn mikilvægt að boðað verði til sjóðsfélagafunda í kjölfarið þar sem félagsmönnum aðildarfélaga sjóðsins verði gefið tækifæri til að fá kynningu á stöðu sjóðsins og næstu skrefum varðandi starfsemina út frá athugasemdum úttektarnefndarinnar. Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar hefur einnig setið í stjórn Stapa, síðast fram til ársfundar 2010.

Fjallað er um skýrsluna á vef Stapa og þar segir m.a. “Skýrslan er mikil vöxtum og kemur víða við. Stjórnarmenn og starfsmenn Stapa lífeyrissjóðs fengu ekki að sjá skýrsluna áður en hún var birt þannig að lítið rúm hefur gefist til fara hana í heild sinni, með það fyrir augum að bregðast við. Sjóðurinn mun fara yfir skýrsluna næstu daga og meta þær upplýsingar, sem þar er að finna, réttmæti þeirra og þær tillögur sem þar eru fram settar og meta hvernig og að hve miklu leyti hann telur ástæðu til að bregðast við. Það blasir hins vegar við, við lestur skýrslunnar,  að svokallað tap lífeyrissjóðanna er mjög gróflega ofmetið í skýrslunni.  Á það m.a. við um þá umfjöllun sem er um Stapa lífeyrissjóð, auk þess sem að talsvert er af villum og rangfærslum í þeim kafla.

Þar má til að mynda nefna umfjöllun um tiltekna sölu á gjaldeyri og viðbrögð stjórnar við tilkynningu endurskoðanda til eftirlitsaðila vegna þeirra. Í skýrslunni er rangt skýrt frá málsatvikum eða því sem máli skiptir sleppt. Til að mynda er ekki skýrt frá því að tilkynningin hafi verið send eftir að endurskoðandinn hafði lokið endurskoðun, sinni, skilað endurskoðunarskýrslu og tilkynnt stjórn að engin mál væru útistandandi. Þetta hafi hann gert án þess að kynna sér þau gögn sem til voru hjá sjóðnum um þessi viðskipti. Þá er ekki frá því greint að náin samskipti voru við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans þegar viðskiptin fóru  fram né að Seðlabankinn skoðaði viðskiptin eftir að þau höfðu verið tilkynnt og gerði ekki við þau neinar athugasemdir. Allar þessar upplýsingar hafði nefndin, en hún kýs samt að skilja við málið þannig að áhöld séu um hvort lög hafi verið brotin í þessu tilviki. Þetta er aðeins eitt dæmi um óvönduð vinnubrögð við gerð skýrslunnar.

Það er skoðun sjóðsins að mikið skorti á að nefndarmenn geri sér grein fyrir því í hverju rekstur lífeyrissjóða er fólginn, hvaða aðstæður sköpuðust á Íslandi bæði fyrir og eftir hrun, hvaða áhrif þær höfðu á sjóðina og hvaða möguleika þeir áttu til að bregðast við.”

 

 

Nýjast