Krakkasport ehf. mun opna verslun á Glerártorgi í byrjun nóvember.
Krakkasport byrjaði sem netverslun fyrir rúmu ári en síðan í apríl hefur lítil verslun verið rekin að Njarðarnesi 6 samhliða vefversluninni.
Það kannast margir við verslunina Krakkasport sem verið hefur starfrækt á netinu og í Njarðarnesi. En rekstaraðilar Krakkasports ætla að opna á Glerártorgi í nóvember frístundaverslun með öllu því sem Krakkasport hefur boðið uppá og meira til og mun nafnið samhliða því breytast í Hobbý og Sport. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glerártorgi
"Það er gaman að fá skemmtilega frístundaverslun í húsið og munum við segja meira frá opnun hennar á næstu dögum ásamt því að segja frá fleiri breytingum og viðbótum sem von er á í verslunarmiðstöðinni.
Eins og nafnið gefur til kynna var aðaláherslan í upphafi vörur fyrir börn en vöruúrval hefur vaxið og orðið fjölbreyttara eftir því sem á líður. Nú sérhæfir verslunin sig í vörum sem viðkoma frístundum fyrir alla aldurshópa.
Mikil eftirvænting er fyrir opnun verslunarinnar sem einnig mun fá nýtt nafn með skírskotun til aukins vöruúrvals," segir í tilkynningunni
Verslunin mun fá nafnið Hobbý & sport þegar hún opnar á Glerártorgi.