Framsýn greiddi 68 milljónir í styrk

Húsavík.
Húsavík.

Stjórn Sjúkrasjóðs Framsýnar á Húsavík kom saman til fundar fyrir áramótin til að úthluta úr sjóðnum til félagsmanna vegna umsókna um styrkveitingar fyrir desember. Greint er frá þessu á vef stéttarfélagsins. Samtals fengu félagsmenn greiddar um 7,7 milljónir í styrki fyrir síðasta mánuð ársins.

Stjórnin kemur saman mánaðarlega og tekur fyrir umsóknir félagsmanna um sjúkaradagpeninga vegna veikinda og annarra styrkja s.s. vegna sálfræðikostnaðar, líkamsræktar og sjúkraþjálfunar. Í heildina fengu félagsmenn Framsýnar greiddar um 68 milljónir í styrki á árinu 2020 sem er í hærra lagi sé tekið mið af meðaltals styrkveitingum síðustu ára.


Athugasemdir

Nýjast