Framlög til Menningarfélags Akureyrar (MAk) hækka umtalsvert milli ára í nýjum samningi milli félagsins og Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Framkvæmdastjóri MAk, Þuríður Helga Kristjánsdóttir, fagnar hækkuninni.
„Þessi hækkun mun sérstaklega efla starf Leikfélags Akureyrar og auðvelda því að ná markmiðum sínum, en auk þess auðvitað styrkja starfsgrundvöll allra sviða MAk,“ segir Þuríður.
MAk var stofnað til að efla enn frekar menningarstarfsemi á Norðurlandi, „og nú þegar þriggja ára tilraunatímabili sameiningar Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands er lokið hefur það sannast að sú ákvörðun var hárrétt. Starfsemin hefur blómstrað og hver sigurinn á fætur öðrum verið unninn. Hækkun framlaga til Menningarfélags Akureyrar endurspeglar þann uppgang sem hefur orðið í menningarlífi á Akureyri undir forystu félagsins og tryggir áframhaldandi blómlegt menningarlíf norðan heiða,“ segir í tilkynningu.