Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri samþykktur

Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar  var samþykktur  einróma á vel sóttum félagsfundi félagsins sem haldinn var laugardaginn þann 13. mars. Hermann Jón Tómarsson bæjarstjóri skipar efsta sæti listans en í heiðurssætinu er Magnús Aðalbjörnsson fyrrverandi aðstoðarskólastjóri.  

Annars er listinn þannig skipaður:

1. sæti Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri

2. sæti Sigrún Stefánsdóttir, sölu- og þjónustufulltrúi og bæjarfulltrúi

3. sæti Logi Már Einarsson, arkitekt

4. sæti Ragnar Sverrisson, kaupmaður

5. sæti Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur og bæjarfulltrúi

6. sæti Valdís Anna Jónsdóttir, þjónustufulltrúi

7. sæti Árni Óðinsson, tæknifulltrúi

8. sæti Linda María Ásgeirsdóttir, ferðamálafulltrúi

9. sæti Þorlákur Axel Jónsson, framhaldsskólakennari

10. sæti Heba Finnsdóttir, framkvæmdastjóri

11. sæti Rúnar Sigtryggsson, rekstrarstjóri

12. sæti Sædís Gunnarsdóttir, verkefnastjóri

13. sæti Guðgeir Hallur Heimisson, bókari

14. sæti Guðrún Birgisdóttir, sjúkraliði

15. sæti Kristján Eldjárn Sighvatsson, háskólanemi

16. sæti Berglind Júlíusdóttir, framhaldsskólanemi

17. sæti Jónas Abel Mellado, afgreiðslumaður

18. sæti Helga Haraldsdóttir, húsmóðir

19. sæti Bergvin Oddsson, rithöfundur

20. sæti Róbert Jónasson, verkamaður

21. sæti Sigrún Bjarnadóttir, húsmóðir

22. sæti Magnús Aðalbjörnsson, frv. aðstoðarskólastjóri

Nýjast