Fram vann öruggan sigur á KA/Þór, 30:18, er liðin mættust í Safamýrinni í dag í N1- deild kvenna í handbolta. Staðan í hálfleik var 15:7 fyrir Fram.
Martha Hermannsdóttir og Arna Valgerður Erlingsdóttir voru markahæstar í liði KA/Þórs í kvöld með 5 mörk hvor. Hjá Fram voru markahæstar þær Karen Knútsdóttir og Guðrún Þóra Hálfdánardóttir með 6 mörk.
KA/Þór situr því áfram í 7. sæti deildarinnar með 7 stig en Fram er í öðru sæti með 29 stig.