Forvarnarfulltrúi ráðinn

Samfélags- og mannréttindadeild Akureyrarbæjar hefur ráðið Grétu Kristjánsdóttur (til vinstri á mynd) til starfa sem forvarnafulltrúa, en 25 manns sóttu um starfið í upphafi. Fyrr í sumar var Halldóra Björg Sævarsdóttir (til hægri á mynd) ráðin sem umsjónarmaður handverksmiðstöðvarinnar Punktsins. Báðar hafa þær Gréta og Halldóra starfsstöð í Rósenborg þar sem samfélags- og mannréttindadeild er til húsa.  Gréta og Halldóra eru báðar brautskráðar frá Háskólanum á Akureyri. Halldóra er með B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræðum með textílmennt sem kjörsvið auk þess sem hún hefur sótt fjölda námskeiða í ýmiskonar handverki. Hún hefur undanfarið starfað á leikskólanum Tröllaborgum. Gréta hefur B.A. gráðu í sálfræði og hefur síðastliðið ár starfað sem umsjónarmaður félagsmiðstöðvar.

Nýjast