Fólk er hvatt til að mæta í gönguna en safnast verður saman við Alþýðuhúsið kl. 13:30, þar sem gangan leggur af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Hákon Hákonarson, formaður FMA, mun flytja ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna. Einnig verður skemmtidagskrá, kaffiveitingar og happadrætti. Skemmtidagskráin verður með Kristjáni Edelstein og Pétri Kristjánssyni, atriðum úr söngleiknum „Hárinu" og Hymnodiu undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar.