Føroya Banki eignast meirihluta í Verði tryggingum hf.

Samkomulag á milli hluthafa Varðar trygginga hf. og Føroya Banka um aðkomu bankans að tryggingafélaginu, var undirritað í dag. Samkvæmt samkomulaginu auka Føroya Banki og núverandi hluthafar Varðar, SP-Fjármögnun hf., NBI hf. og Byr sparisjóður, hlutafé félagsins um 700 milljónir króna.  

Með kaupum á hlutafé af núverandi hluthöfum fyrir 550 milljónir króna og 600 milljóna króna hlutafjáraukningu nemur fjárfesting Føroya Banka samtals 1.150 milljónum króna. Eignast bankinn þannig 51% hlut í Verði og verður félagið dótturfélag Føroya Banka. Núverandi hluthafar verða áfram virkir meðeigendur þannig að hluthafahópur Varðar bæði stækkar og eflist, segir í fréttatilkynningu.

Með fjárfestingu Føroya Banka í Verði kemur öflugt erlent fjármálafyrirtæki inn á íslenskan markað. Staða Varðar styrkist til muna, eiginfjárstaða félagsins eftir hlutfjáraukningu verður um 1.300 milljónir króna og uppfyllir félagið þar með þær gjaldþolskröfur sem til þess eru gerðar. Þá verður félagið í sterkri stöðu til áframhaldandi uppbyggingar. Føroya Banki er með yfir 40% markaðshlutdeild á bankamarkaði í Færeyjum og hefur afkoma bankans verið góð undanfarin ár. Fjárhagslegur styrkur Føroya Banka er mikill og eiginfjárhlutfall með því hæsta á Norðurlöndum.

Vörður hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum. Síðastliðin þrjú ár hefur félagið tvöfaldast að stærð og eykst nú styrkur þess til áframhaldandi sóknar á íslenskum tryggingamarkaði. Viðskiptavinir Varðar eru nú liðlega 28.000 og er markaðshlutdeild félagsins á einstaklingsmarkaði um 13% en heildarhlutdeild í iðgjöldum á vátryggingamarkaði er um 9%. Hagnaður er af rekstri Varðar fyrstu níu mánuði árins 2009 í samræmi við áætlanir félagsins. Hjá Verði tryggingum starfa ríflega 50 manns.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins á Íslandi, í Danmörku og Færeyjum og Samkeppniseftirlitsins á Íslandi. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans veitti hluthöfum Varðar ráðgjöf við viðskiptin.

Nýjast