Ímynd Oddeyrar á Akureyri er frekar neikvæð og sker sig úr öðrum hverfum bæjarins. Sú ímynd birtist á mismunandi vegu, t.d. í skólum og orðum fólks á götunni. Þetta er meðal þess kemur fram í BA ritgerð Herdísar Helgadóttur fjölmiðlafræðings frá Háskólanum á Akureyri, sem ber heitið Oddeyri og ímynd þess: Hvaðan kemur ímyndin og hvar er hana að finna?
Íbúar Eyrarinnar verða varir þess neikvæðu ímynd og upplifa fordóma í sinn garð.
Ég upplifði það nú síðast þegar ég var að bíða eftir leigubíl eftir árshátíð Akureyrarbæjar, segir Jón Einar Jóhannsson íbúi í hverfinu. Hann segir nauðsynlegt að efla ímynd hverfisins. Bæjaryfirvöld þurfa að fara að sinna Eyrinni af alúð eins og gert hefur verið t.d. í Innbænum. Þar hefur greinilega verið tekið til hendinni og er bænum til sóma. Þetta þarf líka að gerast í okkar hverfi því Eyrin á skilið mun betra. Ný hverfisnefnd var nýlega kosin og mun fljótlega setja upp áætlun til að spyrna við fordómum gagnvart Oddeyrinni.
Nánar er fjallað um þetta mál og rætt við Jón Einar í prentútgáfu Vikudags