Claudia Kunz nam við Richard Strauss tónlistarháskólann í Munchen og tók einnig þátt í námskeiðum hjá Hans Hotter, Daniel Ferro við Juilliard tónlistarháskólann í New York og Norman Shettler. Hún hefur komið fram í flestum þekktustu óperuhúsum Evrópu.
Ulrich Eisenlohr stundaði framhaldsnám í píanóleik hjá Rolf Hartmann við tónlistarháskólann í Heidelberg/Mannheim og meðleik við ljóðasöng hjá Konrad Richter við tónlistarháskólann í Stuttgart. Að loknu námi hófst farsæll ferill hans sem meðleikari með fjölda hljóðfæraleikara og söngvara í Evrópu, Ameríku og Japan.