Flugfélög benda á mikilvægi aðflugsbúnaðar

Breska flugfélagið Titan Airways mun leysa Enter Air af og fljúga fyrir ferðskrifstofuna Super Break…
Breska flugfélagið Titan Airways mun leysa Enter Air af og fljúga fyrir ferðskrifstofuna Super Break með ferðamenn frá Bretlandi til Akureyrar næsta vetur.

Í öllum viðræðum við erlend flugfélög sem eru að skoða möguleika á beinu flugi til Akureyrar hefur komið fram að það skipti flugfélögin miklu máli að ILS aðflugsbúnaði fyrir aðflug úr norðri á Akureyrarflugvelli verði komið fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Markaðsstofu Norðurlands.

Uppsetning á nýjum aðflugsbúnaði á Akureyrarflugvelli hefur reynst mun dýrari en áætlað var en 80 milljónir vantar til að ljúka verkinu. Framkvæmdin mun því kosta 180 milljónir. Þá hafa sumir bent á að frekar sé þörf á að klára nýtt flughlað en koma fyrir aðflugsbúnaði. Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands segir að nýjustu samskiptin við breska flugfélagið Titan Airways, sem mun fljúga fyrir ferðskrifstofuna Super Break með ferðamenn frá Bretlandi til Akureyrar næsta vetur, undirstriki mikilvægi aðflugsbúnaðar.

„Í bréfi frá Titan Airways segir að ILS búnaður fyrir aðflug úr norðri muni auka sveigjanleika og nýtingarmöguleika vallarins, ekki einungis fyrir Titan Airways heldur einnig önnur flugfélög núna og til framtíðar. Einnig segir í bréfinu að þessi búnaður skipi stóran sess í framtíðaruppbyggingu flugvallarins.“

Flughlað og aðflugsbúnaður útiloka ekki hvort annað

Þá segist stjórn Markaðsstofunnar taka heilshugar undir umræðu um nauðsyn þess að fjármagna stækkun flughlaðs á Akureyrarflugvelli.

„Stækkun flughlaðs og uppsetning betri aðflugsbúnaðar eru þó ekki verkefni sem útiloka hvort annað – þvert á móti eru þau nauðsynleg fyrir uppbyggingu flugvallarins og framtíðarsamgöngur á Norðurlandi. Auk þess er stækkun flughlaðsins mun stærri og kostnaðarsamari framkvæmd en uppsetning ILS búnaðarins og því myndu fjármunirnir sem það kostar að setja upp ILS hrökkva skammt í gerð flughlaðs. Ljóst er að veita þarf mun meiri fjármunum til vallarins en gert hefur verið undanfarin ár til þess að gera hann í stakk búinn til að sinna betur hlutverki sínu sem varaflugvöllur og önnur fluggátt til Íslands.“


Athugasemdir

Nýjast