Byrjað er að fljúga aftur á milli Akureyrar og Keflavíkur á vegum Air Iceland Connect og fór áætlunarflug í gærmorgun frá Akureyri. Air Iceland Connect tilkynnti fyrir nokkru að flug milli Akureyrar og Keflavíkur, í tengslum við millilandaflug, hefjist að nýju í haust. Flugið verður í boði fjórum sinnum í viku; á mánudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum.
Flogið er frá Akureyri kl. 4:30 og lent í Keflavík kl. 5:20 og í bakaleiðinni er flogið frá Keflavík kl. 17:15 og lent á Akureyri kl. 18:05.
Flogið verður á 37 sæta Bombardier Q200 vél og eru því tæplega 300 sæti í boði í hverri viku og samtals tæplega 10 þúsund sæti yfir tímabilið til lok maí.
„Eftirspurn Íslendinga eftir þessu flugi hefur verið mikil en einnig verður eftir sem áður lögð áhersla á að ná til erlendra ferðamanna. Fjölgun þeirra á því tímabili sem þetta flug verður í boði hefur verið gífurleg og mikilvægt er fyrir eðlilega þróun ferðaþjónustunnar að þeir ferðist sem víðast um landið. Beint flug frá Keflavík gerir þeim það mun auðveldar en ella,“ segir í tilkynningu.