Íbúar Akureyrar urðu 18.000 talsins þann 29. maí síðastliðinn þegar Haukur Leó Sveinsson, sonur Sveins Arnarssonar og Elísabetar Þórunnar Jónsdóttur, kom í heiminn. Af því tilefni komu Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, færandi hendi heim til fjölskyldunnar í Grundargerðið og leystu hana út með gjöfum. Fulltrúar bæjarins færðu foreldrunum jafnframt árnaðaróskir og sagði Eiríkur Björn að það væri vel við hæfi að veita viðurkenningu á tímamótum sem þessum en 17.000 íbúinn fæddist fyrir um 5 árum. Sjálfur lét Haukur Leó sér fátt um finnast og svaf værum blundi á meðan fulltrúar bæjarins og fjölmiðla voru á staðnum.