06. janúar, 2010 - 21:58
Fréttir
Akureyringar kvöddu jólin með formlegum hætti og fjölmenntu á árlega þrettándagleði og brennu Íþróttafélagsins
Þórs við Réttarhvamm fyrr í kvöld. Að venju var mikið um dýrðir og skemmti yngsta kynslóðin sér greinilega vel.
Álfakóngur og drottning, jólasveinar, tröll, púkar og alls kyns kynjaverur heilsuðu upp á viðstadda en þetta var jafnframt síðasta
tækifærið til að hitta jólasveinanna áður en þeir héldu til fjalla á ný.
Auk púka, trölla og ýmissa kynjavera steig söngvarinn Heimir Bjarni Ingimarsson á svið með gítarinn og tók lagið og Einar "einstaki"
töframaður sýndi listir sínar. Líkt og í fyrra var Akureyringum og nærsveitarmönnum boðið frítt á þennan viðburð,
sem haldinn var í samstarfi við Akureyrarstofu.