Auglýst var eftir styrkumsóknum í byggðaþróunarverkefnin "Hrísey, perla Eyjafjarðar" og "Glæðum Grímsey" í maí 2017.
Í Hrísey voru til úthlutunar fimm milljónir króna og bárust alls tíu umsóknir um styrki. Eftir að auglýst var, hækkaði Byggðastofnun þann pott sem til ráðstöfunar var um fjórar milljónir. Því voru alls níu milljónir í pottinum. Á fundi verkefnisstjórnar sl. fimmtudag var farið yfir styrkumsóknirnar og þær metnar. Ákveðið var að styrkja átta verkefni, einu var hafnað og einu var frestað til næsta fundar verkefnisstjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Eftirfarandi verkefni fengu styrk að þessu sinni:
Gert er ráð fyrir að það sem eftir er af styrkfé ársins verði auglýst til úthlutunar seinna á árinu.
Í Grímsey voru til úthlutunar sex milljónir króna og bárust alls fimm umsóknir um styrki. Eftir að auglýst var hækkaði Byggðastofnun þann pott sem til ráðstöfunar var sömuleiðis um fjórar milljónir. Því voru alls tíu milljónir í pottinum.
Á fundi verkefnisstjórnar sl. fimmtudag var farið yfir styrkumsóknir og þær metnar. Ákveðið var að styrkja allar umsóknirnar.
Eftirfarandi verkefni fengu styrk:
Heildarupphæð styrkja að þessu sinni er því kr. 7.050.000. Gert er ráð fyrir að það sem eftir er af styrkfé ársins verði auglýst til úthlutunar seinna á árinu.