16. desember, 2010 - 15:39
Fréttir
Mikil hálka er á götum Akureyrar að sögn lögreglu og hafa orðið fjögur umferðaróhöpp í bænum í dag, öll
á neðri hluta Brekkunnar og á Eyrinni. Í tveimur árekstranna rákust tveir bílar saman, í eitt skipti ók bíll á
fánastöng og einnig ók bíll á grindverk og hafnaði í garði. Engin slys urðu á fólki, en eignatjón er umtalsvert.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri er mjög hált víða við gatnamót en búið er að bera sand á hluta af götum
bæjarins. Þetta kemur fram á mbl.is.