Það bendir á að þegar búið er að draga frá virðisaukaskatt, tekjuskatt og útsvar veiðimanna komi í ljós að raunverulegur sparnaður sé í kringum 5 milljónir króna og muni þar 12 milljónum í útreikningum. „Allt frá 13. öld hafa verið inni ákvæði um fækkun refa. Það hafa ekki verið færð rök fyrir því af hverju það sé í lagi að hætta því akkúrat núna. Fróðlegt væri að heyra hverjir voru ráðgjafar ráðherra í þessu máli, „ segir ennfremur í ályktuninni og að félaginu sé ekki kunnugt um að rætt hafi verið við hagsmunaaðila.