Fjárborgin við Vindheima lagfærð
Ofan við Vindheima á Þelamörk er fallega gerð hringlaga grjóthleðsla með allt að mannhæðarháum veggjum. Mannvirkið hefur verið
nefnt Fjárborg, Sauðaborg eða Vindheimaborg. Mannvirkið hefur staðið ótrúlega vel, en nokkuð grjót hefur þó hrunið úr
því, líklega vegna þess að skepnur hafa nuddað sér við veggina. Sagnir eru um að borgin hafi líka skemmst í
Dalvíkurskjálftanum 1934.
Árið 2006 fóru nokkrir félagar úr Ferðafélaginu Hörgi til að lagfæra það sem hrunið hafði, en ekki tókst að ljúka verkinu. Ekkert er vitað um aldur eða tilurð mannvirkisins, en sennilega hefur borgin verið notuð sem skjól fyrir sauðfé á vetrarbeit. Á dögunum unnu erlendir sjálfboðaliðar úr samtökunum SEEDS við lagfæringar á Fjárborginni og tókst að ljúka henni. Einnig var endurreist einföld girðing umhverfis borgina til að draga úr skemmdum af völdum búfjár.