„Þetta er samstarfsverkefni hjá okkur og sveitarfélaginu og markmiðið að nýta þennan kvóta í því augnamiði að byggja upp atvinnustarfsemi á staðnum," segir Ingi Jóhann. Áætlanir ganga út á að starfsemi hefjist í frystihúsinu fljótlega eftir áramót, „við byrjum eflaust rólega, en stefnum að því að byggja upp jafnt og þétt," segir Ingi Jóhann. Hversu margt starfsfólk verður ráðið í fyrstu sagði hann ekki ákveðið en að einhver hópur manna fengi þar vinnu. Í húsinu verður hefðbundin bolfiskvinnsla með þeim sveiganleika sem innan hennar er að finna. „Við erum þokkalega bjartsýn, ef greinin fær að vera í friði verður hægt að byggja upp," segir hann.
Um 10 til 15 manns í hreppnum eru án atvinnu um þessar mundir, einkum starfsfólk sem áður vann í frystihúsinu. Brim rak þar áður fiskvinnslu en hætti starfsemi fyrr á árinu og hefur engin starfsemi verið þar síðustu mánuði.