Fimmta leiknum frestað í Íshokkíinu

Fimmta leik SA og SR í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí sem fara átti fram í kvöld kl. 18:00 hefur verið frestað þar til niðurstaða áfrýjunardómstóls ÍSÍ liggur fyrir. SA er sem stendur Íslandsmeistari en það gæti breyst ef áfrýjunardómstóll hnekkir fyrri dómi. Í fréttatilkynningu frá Íshokkísambandinu segir: „Eins og kunnugt er kærði Skautafélag Akureyrar, Skautafélag Reykjavíkur eftir fyrsta leik félaganna í úrslitum. Íþróttadómstóll ÍSÍ hefur dæmt í málinu Skautafélagi Akureyrar í vil. Alveg ljóst er að þrátt fyrir að áfrýjunarfrestur sé ekki liðinn, þá stendur niðurstaða dómstóls ÍSÍ. Þar með hefur Skautafélag Akureyrar unnið 3 leiki í úrslitum til Íslandsmeistara og unnið Íslandsmeistaratitil. Í þessu samhengi hefur verið ákveðið að 5. leik liðanna, sem leika átti á Akureyri klukkan 18:00 í dag, verði frestað þar til að í ljós kemur hvort áfrýjunardómstóll ÍSÍ hnekkir fyrri dómi.“

Nýjast