Áætlunarferðum ferjunnar Sæfara frá Dalvík til Grímseyjar hefur verið fjölgað úr þremur í fjórar á viku yfir vetrartímann og þær eru fimm á viku á sumrin. Einnig hefur fargjald fyrir fullorðna verið lækkað eða úr 4.850 kr. í 3.500 kr. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.
"Þessar breytingar verða sannarlega til að bæta samgöngur við Grímsey og vonandi leiða þær einnig til þess að heimsóknum ferðafólks til þessa útvarðar Akureyrarkaupstaðar í norðri fjölgi," segir á vef Akureyrarbæjar.