Ólafur Ásgeirsson starfaði sem lögreglumaður á Akureyri í hátt í hálfa öld en lét af störfum fyrir átta árum. Ólafur hefur haft nóg fyrir stafni eftir að hann hætti að vinna og lætur sér aldrei leiðast. Hann er annálaður bílaáhugamaður og grípur oft í prjónana fyrir framan sjónvarpið.
Vikudagur heimsótti Ólaf og spjallaði við hann um árin í löggunni, lífið eftir vinnuna, áhugamálin og fjölskylduna. Viðtalið má nálgast í prentúgáfu blaðsins.