Fallegt veður á Akureyri

Fannhvítur gróður við eitt hús í Oddeyrargötu í morgun en snjólaust í næstu görðum.
Fannhvítur gróður við eitt hús í Oddeyrargötu í morgun en snjólaust í næstu görðum.

Það hafa skipst á skin og skúrir í veðrinu norðan heiða að undanförnu. Um síðustu helgi snjóðaði og í kjölfarið myndaðist hálka á götum Akureyrar, með tilheyrandi vandræðum fyrir marga ökumenn sem ekki eru komnir á vetrardekk. Á mánudagsmorgun var svo hægt að opna skíðagöngubrautina í Hlíðarfjalli. Það fór svo að hlýna á ný og í dag er fallegasta veður á Akureyri, sól, stilla, hitastigið yfir frostmarki og allar götur auðar.

Bíleigendur, sem ekki hafa skipt yfir á vertrardekk, eru því enn tvístígandi. Um helgina og fram í næstu viku er gert ráð fyrir hæglætisveðri norðanlands, suðlægum áttum og rauðum hitatölum.

Nýjast