Eining-Iðja fagnar þessu og vonar að félagið heyri af fleiri ánægjulegum tíðundum sem þessum á næstunni. Þá fagnar Eining-Iðja undirritun rammasamnings milli Energy ehf. og Akureyrarkaupstaðar um að komið verði á fót koltrefjaverksmiðju á Rangárvöllum á Akureyri. Vitnað er í frétt á vef Vikudags, þar sem Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri segir að gangi áætlanir eftir muni verksmiðjan skapa allt að 100 ný störf, en heildarkostnaður við uppbygginguna er áætlaður 9-10 milljarðar króna.
Þetta er fagnaðarefni og vonar Eining-Iðja að áætlanir gangi eftir og að verksmiðjan muni rísa á Akureyri í náinni framtíð. Þetta kemur frá vef félgasins.