Facebook logar vegna ákvörðunar í bæjarstjórn Akureyrar

Fyrirhugaðar byggingar við Tónatröð. Hilda Jana Gísladóttir er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í bæj…
Fyrirhugaðar byggingar við Tónatröð. Hilda Jana Gísladóttir er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar.

Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar samþykkti í gærkvöld að úthluta verktakafyrirtækinu SS-Byggir fjölbýlishúsalóð við Tónatröð án auglýsingar. Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýnir þetta harðlega í Facebookfærslu í gær og segist bæði döpur og slegin yfir ákvörðuninni.

Fjölmargir hafa tjáð sig í athugasemd við færsluna og eru langflestir afar ósáttir við ákvörðun bæjarins. 

Íbúar á svæðinu við Tónatröð skrifuðu grein í blaðið fyrir skemmstu þar sem áætlunum bæjarstjórnar var harðlega mótmælt og skorað á bæinn að láta ekki verða af þessum framkvæmdum.

Færslu Hildu Jönu í gær má lesa hér að neðan:

„Á bæjarstjórnarfundi Akureyrarbæjar í dag var á dagskrá ákaflega sérstakt skipulagsmál, sem samþykkt var með sex atkvæðum gegn fimm. Til þess að gera mjög langa sögu stutta þá má segja að meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt að úthluta einu verktakafyrirtæki fjölbýlishúsalóð án auglýsingar. Til þess að gera söguna aðeins lengri þá fólst ákvörðunin í því að heimila einu fyrirtæki að taka frá einbýlishúsalóðir við Tónatröð, með fyrirvara um að þeim verði breytt í fjölbýlishúsalóðir síðar. 

Umræddar lóðir hafa hins vegar aldrei verið auglýstar með þeim skilmálum að unnt sé að breyta þar skipulagi og enn er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir einbýlishúsalóðum á svæðinu. Á tíma núverandi bæjarstjórnar hafnaði skipulagsráð öðru fyrirtæki sem sóttist eftir mun umfangsminni breytingum á skipulagi á þessari sömu lóð á þeim forsendum að bygging fjölbýlishúsa á umræddum lóðum samræmdist ekki útliti og yfirbragði nærliggjandi byggðar. 

Það fyrirtæki hefur nú, skiljanlega, gert athugasemdir við að þeirra hugmyndum hafi verið hafnað en nú ætli sama bæjarstjórn að leyfa öðru fyrirtæki mun meiri uppbyggingu og það án auglýsingar. Það að tryggja jafnræði ætti að vera algjört grundvallaratriði í góðri stjórnsýslu hins opinbera, en því miður hefur bæjarstjórn nú kosið að fylgja ekki þeirri meginreglu . Ég er satt best að segja döpur og slegin yfir því að þetta hafi orðið niðurstaðan. 

Fyrirfram hefði ég ekki trúað því að meirihluti bæjarstjórnar væri sáttur við að starfa með þessum ósanngjarna hætti,“ segir Hilda Jana í Facebookfærslu sinni. 


Athugasemdir

Nýjast