04. maí, 2007 - 10:10
Fréttir
Söfnin í Eyjafirði opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi laugardaginn 5. maí. Tilefnið er eyfirski safnadagurinn en markmiðið með deginum er að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu og áhugaverðu safnaflóru sem Eyjafjörður hefur upp á að bjóða. Söfnin munu þennan dag kynna starfsemi sína og bjóða uppá margt áhugavert. Þar má nefna listflug, ratleik, upplestur, leiðsögn, bátsferð, brauðbakstur á hlóðum, gamaldags leiki og tónlist, gestum að kostnaðarlausu. Sameiginleg heimasíða safnanna
http://www.sofn.is/ (
http://www.museums.is/) verður opnuð þennan sama dag. Heimasíðan er afrakstur sameiginlegs kynningarátaks safnanna í Eyjafirði en þegar hefur verið gefinn út sameiginlegur bæklingur, Söfnin í Eyjafirði.
Eftirfarandi söfn verða opin og aðgangur er ókeypis: Minjasafnið á Akureyri,
Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit, Sigurhæðir hús Matthíasar Jochumssonar, Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Nonnahús, Listasafnið á Akureyri, Gamli bærinn í Laufási, Náttúrgripasafn Ólafsfjarðar, Síldarminjasafnið á Siglufirði, Iðnaðarsafnið, Byggðasafnið Hvoll á Dalvík, Flugsafn Íslands, Amtsbókasafnið og Davíðshús.
Söfnin í samvinnu við Sérleyfisbíla Akureyrar, leiðsögumenn á Norðurlandi og
Vaxtarsamning Eyjafjarðar bjóða uppá svokallaðar safnarútur. Auk þess verður
safnastrætó á ferðinni um Akureyri í samstarfi við Akureyrarbæ.Farið verður frá upplýsingamiðstöð ferðamanna á Akureyri í Hafnarstræti 82 kl. 10. Lágmarks þátttakendur 10 manns. Leiðsögumaður verður með í för og þátttaka er ókeypis.
Safnarúta 1 fer á Smámunasafn Sverris Hermannssonar, Safnasafnið og Gamla
bærinn í Laufási. Heimkoma kl. 15.
Safnarúta 2 fer á Byggðasafnið Hvol á Dalvík, Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði
og Síldarminjasafnið á Siglufirði. Heimkoma kl. 16.
Safnastrætó: Frá Nætursölunni kl. 13, 14, 15 og 16, en strætóinn keyrir á milli safnanna á Akureyri með leiðsögumanni. Verkefnið er í samstarfi við Akureyrarstofu og Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi.