Erlendum íbúum fjölgar ört á Akureyri

Tvö ár eru nú liðinn síðan 23 Sýrlendingar settust að á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir
Tvö ár eru nú liðinn síðan 23 Sýrlendingar settust að á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir

Miklar og örar breytingar hafa átt sér stað á uppruna íbúa Norðurlands eystra. Á undanförnum misserum hafa færri erlendir ríkisborgarar verið búsettir á Akureyri en að jafnaði á landinu öllu, eða einungis 3,4% íbúa m.v. 1. janúar 2017.

Mikil breyting hefur hins vegar orðið á því en í lok þriðja ársfjórðungs ársins 2017 voru 4% íbúa af erlendu bergi brotnir. Þetta kemur fram í skýrslu Íslandsbanka um stöðuna á fasteignamarkaði og fólksfjölgunar á Akureyri.

Fólki með erlent ríkisfang fjölgaði um 23% frá þriðja ársfjórðungi 2016 til þriðja ársfjórðungs 2017, eða úr 600 í 740 manns. Þess má geta í þessu samhengi að Akureyrarbær tók við 23 flóttamönnum frá Sýrlandi í janúar 2016 og því skýrist fjölgunin einungis að hluta vegna þess verkefnis.

Nýjast