Alvarlegt vinnuslys varð á Norðausturlandi laust eftir hádegi sl. þriðjudag, samkvæmt frétt á Landpóstinum, fréttavef fjölmiðlafræðinema við Háskólann á Akureyri. Slasaðist sjómaður alvarlega þar sem hann var að vinna við löndun. Var strax ljóst að um mjög alvarlega áverka væri að ræða og þyrfti að koma manninum sem fyrst undir læknishendur.
Veður var mjög slæmt á þessu svæði og ófærð þegar reynt var að flytja manninn til Akureyrar með sjúkrabíl þar sem ekki var hægt að notast við þyrlu. Rúmir 12 tímar liðu frá því að slysið varð uns maðurinn var kominn á Sjúkrahúsið á Akureyri og þeirri spurningu er velt upp hvort betri samgöngur hefðu stuðlað að því að maðurinn hefði komist þangað fyrr. Nánar á landpósturinn.is.