Enn stefnt á hótelbyggingu á Sjallareitnum

Stefnt hefur verið að hótelbyggingu í Sjallanum undanfarin ár en lítið hefur þó gerst.
Stefnt hefur verið að hótelbyggingu í Sjallanum undanfarin ár en lítið hefur þó gerst.

Stefnt er að því að hótel muni rísa á Sjallareitnum á Akureyri á næstu tveimur árum. Þetta segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, við fyrirspurn blaðsins. Áætlað var að hefja framkvæmdir árið 2017 og opna árið 2019.

Lítið hefur hins vegar frést af fyrirhugaðri hótelbyggingu á Sjallanum og hvort yrði af framkvæmdinni. Segir Davíð Torfi að framkvæmdum hafi seinkað en til standi ennþá að reisa þar hótel, „ef allt gengur eftir,“ segir Davíð Torfi.

Íslandshótel sömdu við arkitektastofuna Kollgátu um hönnun á allt að 120 herbergja hóteli í miðbæ Akureyrar á reit sem kenndur er við Sjallann. Hótelið mun verða rekið undir nafni Fosshótela.

 


Athugasemdir

Nýjast