08. febrúar, 2011 - 15:06
Fréttir
Á fundi skólanefndar Akureyrar í gær var lagt fram uppgjör í rekstri skólamötuneytanna í grunnskólunum fyrir árið 2010.
Þar kemur fram að halli var á rekstrinum á árinu, en mismikill eftir skólum. Skólanefnd leggur áherslu á að skoðað verði
hvort ekki sé hægt að lækka hráefniskostnað t.d. með betri stýringu á innkaupum.