Engir reikningar fyrir skólavist í aprílmánuði

Ekki verður rukkað fyrir þjónustu sem ekki er innt af hendi. Mynd/Þorgeir Baldursson.
Ekki verður rukkað fyrir þjónustu sem ekki er innt af hendi. Mynd/Þorgeir Baldursson.

Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að engir reikningar verði sendir út vegna skólavistunar og skólamáltíða í grunnskólum fyrir apríl og að ritarar haldi utan um leiðréttingar vegna skertrar þjónustu frá 16.-31. mars 2020. Ekki verður endurgreitt vegna skertar þjónustu heldur horft til þess að inneign gangi upp í þjónustu síðar á skólaárinu. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Leikskólagjöld vegna aprílmánaðar 2020 taka breytingum í samræmi við veitta þjónustu, þ.e. ef barn er annað hvern dag í leikskólanum er innheimt 50% gjald. Þurfi að loka leikskóla fyrir öllum öðrum en forgangshópi er ekki innheimt gjald fyrir þá sem verða fyrir lokun. Þá er ekki innheimt gjald fyrir börn sem foreldrar hafa heima á tímabilinu sem takmörkun á skólahaldi nær til. Niðurfellingin fæst aðeins ef fjarveran er samfelld og/eða reglubundin.

Nauðsynlegt er að tilkynna fjarveruna til skólastjórnenda viðkomandi leikskóla. Leiðrétting á skertri þjónustu vegna marsmánaðar fer fram samhliða útgáfu á reikningi vegna aprílmánaðar. Þá verða greiðsluseðlar vegna aprílmánaðar í Tónlistarskólanum á Akureyri ekki sendir út fyrr en ljóst er hvernig kennslu verður háttað þar næstu vikurnar.

„Grundvallaratriði er að ekki er innheimt fyrir þjónustu sem ekki er innt af hendi,“ segir á vef bæjarins.

 


Athugasemdir

Nýjast