29. október, 2009 - 12:54
Fréttir
Gert er ráð fyrir endurvinnslutunnum við öll heimili í endurnýjuðum samningi um sorphirðu, sem Hörgárbyggð hefur gert við
Gámaþjónustu Norðurlands ehf. Framundan eru miklar breytingar á meðhöndlun úrgangs á Eyjafjarðarsvæðinu, sem m.a. munu leiða
til þess að kostnaður við förgun óflokkaðs úrgangs mun aukast mikið á næstu árum.
Því er mikilvægt að sem allra mest af úrgangi heimila, fyrirtækja og stofnana verði flokkaður til endurvinnslu til að halda aftur af
kostnaðaraukningunni. Í því sambandi eru endurvinnslutunnurnar lykilatriði, segir á vef Hörgárbyggðar.