31. maí, 2009 - 09:49
Fréttir
Rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöld var Slökkviliðið á Akureyri kallað út að kjötvinnslu Norðlenska við
Grímseyjargötu. Eldboð barst stjórnstöð Öryggismiðstöðvar og þegar vaktmaður kom á staðinn var talsverður reykur
í miðrými hússins.
Reykkafarar voru sendir inn í húsið og fundu þeir fljótlega upptök eldsins en sagi úr reykkofni hafði verið settur í plastbakka og
hafði eldur læst sig í bakkann. Slökkvistarf tók skamma stund en húsið var reykræst á eftir. Litlar skemmdir urðu á
húsnæðinu.