Eldur í Becromal

Eldur kom upp í einni af vélum Becromal í aflþynnuverksmiðju fyrirtækissins við Krossanes í gær. Starfsmenn verksmiðjunnar brugðust skjótt við og slökktu eldinn með slökkvitækjum og höfðu slökkt allan eld þegar slökkviliðið kom á vettvang. Nokkrar skemmdir urðu á vélinni sem kviknaði í en eldurinn hafði ekki áhrif á aðra starfsemi verksmiðjunnar. Ekki er vitað um upptök eldsins á þessu stigi, eftir því sem fram kemur á vef Slökkviliðs Akureyrar. 

Nýjast