Bæjarstjórn Akureyrar mun setja á laggirnar nefnd á næstu dögum sem mun aðstoða við áætlaðan flutning Fiskistofu til Akureyrar. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, mun leiða nefndina. Bæjaryfirvöld munu gera sérstakt kynningarefni sem snýr að bænum fyrir starfsfólk Fiskistofu. Þarna verða t.d. upplýsingar um atvinnumöguleika fyrir maka, hvernig staðan er í húsnæðismálum og framboð á leikskólum, segir Eiríkur Björn.