Einstæðar mæður geta líka sinnt bæjarmálum

Margrét Kristín ásamt börnunum sínum þremur.
Margrét Kristín ásamt börnunum sínum þremur.

Þrátt fyrir að vera einstæð móðir með þrjú börn lét Margrét Kristín Helgadóttir það ekki stoppa sig í að hella sér í bæjarmálin og segir mikilvægt að bæjarfulltrúar endurspegli sem flesta hópa samfélagsins. Hún er bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar á Akureyri og segist snemma hafa fengið áhuga pólitík. Á framhaldsskólaárunum gerðist hún feministi og barátta fyrir jafnrétti hefur verið henni hugleikin allar götur síðan.

Margrét tók sér mánaðarfrí í vor frá bæjarmálum til að klára lokaritgerð í opinberri stjórnsýslu. Hún segir það oft hafa komið sér vel að eiga góða að þegar bæjarmálin og námið tóku mikinn toll. Vikudagur ræddi við Margréti en nálgast má viðtalið í prentútgáfu Vikudags.

-þev

Nýjast