Eining - Iðja styrkir Velferðarsjóðinn um 1,1 milljón króna

Alls fengu 410 fjölskyldur og einstaklingar jólaaðstoð í fyrra og er gert ráð fyrir að þær verði sís…
Alls fengu 410 fjölskyldur og einstaklingar jólaaðstoð í fyrra og er gert ráð fyrir að þær verði síst færri í ár Mynd Eining-Iðja

Eining-Iðja hefur afhent Velferðarsjóðnum á Eyjafjarðarsvæðinu styrk að upphæð kr. 1.1 milljón króna. Félagið hefur í mörg ár styrkt Jólaaðstoðina, samstarfverkefni Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins á Akureyri sem hefur staðið yfir frá árinu 2013. Þetta samstarf hefur gengið mjög vel og ákváðu félögin í fyrra að stofna Velferðarsjóð Eyjafjarðarsvæðis og er samstarfið nú á ársgrundvelli en ekki einungis fyrir jólin. 

Um miðjan nóvember hófst fjáröflun vegna jólaaðstoðarinnar og á sama tíma opnaði sjóðurinn nýja heimasíðu, www.velferdey.is, þar sem má nálgast upplýsingar um velferðaraðstoð sem sjóðurinn veitir. Til að byrja með er áhersla lögð á að kynna jólaaðstoðina 2022.

Mikil fjölgun umsókna

Markmið verkefnisins er að styðja efnaminni fjölskyldur og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu og kemur fram á heimasíðunni að söfnunarféð er notað til kaupa á gjafakortum sem einstaklingar geta verslað mat fyrir. „Samtals fengu 410 fjölskyldur og einstaklingar jólaaðstoð árið 2021. Á árinu 2022 hefur orðið mikil fjölgun umsókna og búast má við því að jólaaðstoðin verði engin undantekning á því. Mörg heimili á Eyjafjarðarsvæðinu eru illa stödd fjárhagslega og þurfa á aðstoð að halda. Því má gera ráð fyrir miklum fjölda umsókna um jólaaðstoð árið 2022.

Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Fjallabyggð að Grenivík. 


Athugasemdir

Nýjast