Ein með frekar litlu í ár

Verslunarmannahelgin á Akureyri verður lágstemmd og fjölskylduvæn, fjöldi viðburða á dagskrá en þeim…
Verslunarmannahelgin á Akureyri verður lágstemmd og fjölskylduvæn, fjöldi viðburða á dagskrá en þeim dreift um bæinn til að virða sóttvarnarreglur.

„Kannski mætti segja að þetta verði „Ein með frekar litlu“ í ár en við gerum það besta úr aðstæðum og njótum helgarinnar,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson er framkvæmdastjóri Viðburðastofu Norðurlands sem stendur fyrir skipulagningu dagskrár um verslunarmannahelgina fyrir hönd Vina Akureyrar.

„Það er að mínu mati einboðið að halda ekki hefðbundna hátíð en í lagi að bjóða upp á hófstillta viðburði sem fyrst og fremst eru miðaðir að fjölskyldufólki. Það er hins vegar mikilvægt að heimamenn og gestir sýni mikla ábyrgð, virði fjöldatakmarkanir og gæti að persónulegum sóttvörnum eins og ávallt. Þessum faraldri er því miður hvergi nærri lokið,“ segir Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyri hafi verið afar vinsæll áfangastaður í allt sumar og verði það líka um verslunarmannahelgina.  

Fjölskylduvænir viðburðir víða um bæinn

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður ekki haldin með hefðbundnu sniði á Akureyri um verslunarmannahelgina og brugðið verður út frá venjum í veigamiklum atriðum. Er það gert vegna Covid-19 faraldursins. Í boði verða litlir fjölskylduvænir viðburðir víðs vegar um bæinn og tryggt að fullorðnir gestir á einstökum stöðum verði aldrei fleiri en 500 í samræmi við þau mörk sem sett eru af sóttvarnaryfirvöldum. Stórir útitónleikar í miðbænum verða ekki á dagskrá né heldur Sparitónleikar á flötinni við Samkomuhúsið á sunnudagskvöld. Þá verður skemmtistöðum lokað kl. 23 öll kvöld eins og reglur segja til um.

Aldurstakmark hækkað á tjaldsvæðum

Á tjaldsvæðum bæjarins verður aldurstakmark hækkað í 20 ár í því skyni að auðvelda fjöldatakmarkanir og forgangsraða í þágu fjölskyldufólks. Með þessu vilja skipuleggjendur hátíðarinnar sýna ábyrgð en gefa fjölskyldufólki engu að síður tækifæri til að gera sér dagamun á Akureyri um verslunarmannahelgina.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarstofu.

 


Athugasemdir

Nýjast