Efni eða gömul klæði breytast í fagra öskudagsbúninga

Minjasafnið á Akureyri, Punkturinn og Grasrót - Iðngarðar vilja bjóða áhugasömum einstaklingum að koma saman og sauma eða breyta fötum fyrir öskudaginn. Laugardaginn 13. febrúar frá kl. 10 - 16 í Zontasalnum, Aðalstræti 54 A munu efni og/eða gömul klæði breytast í fagra búninga.

 

Á staðnum verður fólk til hjálpar sem saumað hefur ófáa búninga í gegnum tíðina. Áhugasamir munu geta séð Stoðvini Minjasafnins á Akureyri gera bolluvendi og öskupoka milli kl 14 og 16. Trésmíðaverkstæðið í Iðngörðunum á Hjalteyragötu 20 (gamli Slippurinn) verður opið frá kl 10-16 fyrir þá sem þurfa að smíða tilheyrandi fylgihluti í tilefni af öskudeginum. Þar verða smiðir öllum til aðstoðar. Þeir sem vilja koma og spreyta sig við búningagerð koma sjálfir með það efni sem til þarf í draumabúninginn. Á staðnum verða fáeinar saumavélar og því vel þegið að flestir kippi sinni saumavél með. Iðngörðunum verður hinsvegar hægt að nálgast ýmiskonar timbur gegn vægu verði. Allir eru velkomnir.

Nýjast