Á síðasta fundi félagsmálaráðs var fjallað um mikilvægi þess að efla áhuga á störfum á Öldrunarheimilum Akureyrar og fjölga starfsfólki. Samkvæmt mannfjöldaspám mun öldruðum fjölga í framtíðinni, aldraðir munu lifa lengur með fjölþætta sjúkdóma. Fyrirséð er að erfitt getur orðið að fá starfsfólk til starfa í öldrunarþjónustu í framtíðinni. Fram kemur í bókun félagsmálaráðs, að samkvæmt starfsáætlun 2011-2014 skal skipa starfshóp sem gerir áætlun um aðgerðir til þess að gera störf á ÖA sýnileg og áhugaverð. Einnig verði gerð áætlun um átak til þess að fjölga fagfólki. Starfshópur skili tillögum fyrir árslok 2012.
Félagsmálaráð skipaðí Dag Fannar Dagsson og Jóhann Ásmundsson í vinnuhóp til þess að vinna aðgerðaráætlun til að gera störf á ÖA sýnilegri og áhugaverðari og að fjölga fagfólki. Framkvæmdastjóra ÖA var falið að leita eftir tilnefningum annarra aðila í vinnuhópinn.
Einnig var fjallað um áætlun um þróun þjónusturýma. Samkvæmt starfsáætlun 2011-2014 skal skipa starfshóp sem gerir áætlun um þróun þjónusturýma á ÖA, þ.e. áætlaðan fjölda hjúkrunar-, dvalar-, skammtíma- og dagvistarrýma og staðsetningu þeirra, sem og áætlun um nýbyggingar í stað úreltra rýma á ÖA. Starfshópur skal skila tillögum til félagsmálaráðs fyrir 1. júní 2012. Félagsmálaráð skipaði Indu Björk Gunnarsdóttur og Oktavíu Jóhannesdóttur sem fulltrúa sína í starfshóp til þess að gera áætlun um þróun þjónusturýma hjá ÖA.