Dúndurfréttir og Eiríkur Hauksson í Hofi
Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur tónleika í Hofi á Akureyri föstudaginn 4. nóvember og með í för verður enginn annar en rokksöngvarinn Eiríkur Hauksson. Dúndurfréttir er landsins besta tónleikasveit, sem haldið hefur uppi heiðri klassískrar rokktónlistar í 15 ár. Sveitin hefur haldið fjöldan allann af tónleikum víðsvegar um landið, m.a með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Eirík Hauksson þarf vart að kynna fyrir Íslendingum en hann hefur verið einn dáðasti söngvari landsins í hjartnær þrjá áratugi, bæði með hljómsveitum sínum Start, Drýsli og ARTCH og undir sínu eigin nafni. Eiríkur kom fram með Dúndurfréttum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina og þótti mönnum takast það vel til að fyrirhugaðir eru tónleikar í Hofi þar sem þeir ætla að flytja það besta úr sögu rokksins í bland við perlur Eiríks í gegnum tíðina, segir í fréttatilkynningu.